Um mig

Um mig

Ég heiti Kári og er menntaður í hagfræði, fjármálum og listfræði. Ég starfa sem markaðsstjóri hjá Creditinfo Group en kenni líka menningarhagfræði í Háskólanum í Bifröst. Ég hef starfað í listageiranum, vann við blaðamennsku, hef þýtt bók um stjórnun og hef fengist við hitt og þetta í gegnum tíðina.

Rauði þráðurinn liggur hins vegar á milli þessara tveggja heima, viðskiptanna og menningar, og það er það sem ég vil leggja áherslu á með þessum vettvangi.

Einhvern tímann var ranglega haft eftir Frank Zappa að það að skrifa um tónlist sé eins og að dansa um arkitektúr. Þessi lína hefur lengi setið í mér vegna þess að hún er svo táknræn fyrir það hversu erfitt það er að yfirfæra tungutak og hugmyndir frá einu sviði yfir í annað.

Menning og viðskipti eru fyrirbæri sem gætu allt eins verið fullkomnar andstæður en að sama skapi gætu þau ekki án hvors annars verið. Að skilja menningu með augum viðskipta eða viðskipti frá sjónarhóli menningarinnar er bæði skrítið og að einhverju leyti ómögulegt verkefni. En það er líka það sem er svo skemmtilegt, vegna þess að ég held að mannleg tilvera blómstri hvað mest þegar við stöndum á mótum andstæðra afla.

Netfang · LinkedIn